Little Battle

1.890 kr.

Spennandi spil fyrir 3-5 leikmenn, 5 ára og eldri. Leikmenn gerast fífldjarfir ofurhugar sem safna liði og halda í ævintýraför til að safna fjársjóði á dularfullri eyju.

Markmiðið er að vera á undan hinum ofurhugaliðunum að safna sem mestum fjársjóð. Fyrsta skrefið er að safna liði í áhöfn með því að velja réttu spilin sem í boði eru. Síðan þarf að ræna fjársjóðinum með því að setja út spil á sama tíma og hinir leikmennirnir og síðast þarf að skipta upp ránsfengnum eftir ákveðnum reglum.

Leiknum lýkur þegar fjársjóðurinn er uppurinn og ríkasti ofurhugaleiðtoginn stendur uppi sem sigurvegari.

In stock

SKU: 41-51601 Categories: ,

Description

Fjöldi leikmanna: 3-5
Leiktími: 15 mín
Aldur: 5+
Hönnuður: Leandro & Dorian Berthelot
Listamaður: Ariel Icandri
Innihald:
• 30 ofurhugaspil
• 18 fjársjóðskistuspil
• 5 langskip
• 1 svefnstaður (spilakassinn)
• Leikreglur

islenskaenska